Hönnun

VélaHönnun–  og hönnunarþjónusta

Frá hugmynd að hönnun

Við hönnum og þróum vörur algjörlega eftir óskum og þörfum viðskiptavinarins. Ferlið nær frá fyrstu hugmynd yfir í fullbúnar framleiðslu- og smíðateikningar sem tryggja gæði og nákvæmni í framkvæmd.

3D-módel og teiknivinna

Við smíðum ítarleg þrívíddarmódel byggð á skissum, tvívíddarteikningum eða lýsingu viðskiptavinarins. Einnig bjóðum við upp á að yfirfæra eldri 2D-teikningar yfir í 3D-umhverfi til að nútímavæða vinnslugögn og auðvelda frekari þróun.

Framleiðsluteikningar

Við smíðum nákvæmar framleiðsluteikningar út frá hönnunarmódelum. Þær innihalda:

  • Samsetningarteikningar sem sýna heildarmyndina og samsetningar.
  • Partateikningar með viðeigandi málvikum (tolerances) fyrir nákvæma smíði.
  • BOM lista 

Einkaleyfateikningar

Við útbúum faglega gerðar teikningar sem uppfylla strangar kröfur vegna einkaleyfaumsókna.

“Render” Raunveruleikamyndir 

Við bjóðum upp á hágæða myndgerð (renderingingar) á 3D-módelum. Með því að varpa raunverulegu útliti, efnisáferð og lýsingu á hönnunina færðu skýra mynd af lokaafurðinni. Þetta er tilvalið fyrir:

  • Kynningarefni og sölu: Sýndu vöruna áður en hún er framleidd.
  • Ákvörðunartöku: Auðveldar val á litum, efnum og áferð.

Sjálfvirknivædd hönnun (Design Automation)

Hagræðið í rekstrinum með því að sjálfvirknivæða endurtekna hönnunarvinnu. Í stað þess að teikna svipaðar útfærslur aftur og aftur, setjum við upp kerfi þar sem þú slærð inn forsendur og tölvan sér um afganginn.

  • Sjálfvirk vinnsla: 3D-módel, smíðateikningar, partalistar og verðtilboð verða til á augabragði.
  • Ávinningur: Minni handavinna, færri villur og hraðari afhendingartími.
Hönnun og smíði síðan 2006